42. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. mars 2019 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Ásmundur Friðriksson (ÁsF) 2. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 41. fundar var samþykkt.

2) Ábending umboðsmanns Alþingis um meinbugi á lögum um almannatryggingar, útreikningur á búsetutíma varðandi örorkulífeyri Kl. 09:30 - Opið fréttamönnum
Á fund nefndarinnar kom Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Arnar Þór Sævarsson, Ágúst Þór Sigurðsson, Gissur Pétursson og Hildur Sverrisdóttir Röed. Fjölluðu þau um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 711. mál - ávana- og fíkniefni Kl. 10:50
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Halldóra Mogensen verði framsögumaður málsins.

4) 644. mál - sjúkratryggingar Kl. 10:55
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Andrés Ingi Jónsson verði framsögumaður málsins.

5) Önnur mál Kl. 11:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:00